Risagjaldþrot?http://arnysig.blog.is/

 
Dýrt er landið, drottinn minn,
                                     dugi ekki minna
                  en vera allan aldur sinn 
                                    fyrir einni gröf að vinna.
 
 
  Fyrr má nú aldeilis fyrr vera, en að "risagjaldþrot"
  blasi við okkur Frónbúunum, þó eitthvað lítið
  pusist af aurum til okkar úr Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
  Eigum nóg af orku, vatni, búpeningi og slarkfærum
  fiskimiðum.
  Við hljótum að geta reddað okkur eitthvað fram
  eftir öldinni.
  Skellum okkur aftur af fullum þunga út
  í kartöflu- og rófuræktina, við hvert hús og
  hýbýliGrin.
  Sjóðum ýsu, gerum plokkara úr afgöngum,
  borðum slátur og grjónagraut tvisvar í viku,
  hjólum í vinnuna eða göngum og lærum
  aftur að moka snjónum sjálf úr bílainnkeyrslunum.
  Sleppum Spánarreisum og heimshornaflakki,
  uns þokkalega virkur gjaldmiðill fæst á landið,
  og seljum ál og vatn á uppsprengdu verði
  öllum sem vilja kaupaDevil.
  Risagjaldþrot, HVAÐ?
  Verður bara svona oggulítið "míní-gjaldþrot", 
  sem við tökum á í sameiningu, á meðan
  góðærissukkararnir eru í áfallahjálp
  á Frönsku Rivierunni eða Svissnesku
  fjallaspai.
  Verða að fá frið til að jafna sig aumingjarnir.
  Töpuðu milljörðum eða billjörðum....vitið þið ekki
  hvað það er "sárt"...og niðurbrjótandi a líkama
  og sálErrm
  Gott ef þeir geta nokkurn tíma hugsað sér
  að setja aftur af stað "pappírspeningafyrirtæki"
  með svona "míniþjóð" sem bakhjarl, sem litla
  Frón er.
  Veslingarnir!  Ósköp eiga þeir bágt...sniff...snýt.
 
        Nú er öllum djöflum dátt.
        Dregur af mönnum gaman.
     Himinglæva og austanátt
     ætla að dansa saman.
 
     Uggir mig um allra hag,
        sem eiga mök við græðgi.
        Stormurinn kaldi líksöngslag
     leikur á símaþræði.
 
 
  Húsfreyja hefur ekki trú á risagjaldþrotum.
  Hún telur að framtíð sé björt á litla Fróni,
  á meðan við höfum nóg að bíta og brenna
  Svo mörg voru þau orð.
  Góðar stundir.
 
 
  Örna Arnarsson skáld er að sjálfsögðu
  skáld húsfreyju í dagSmile.
  
 
 
 
 
 
     
 
        
 

 

mbl.is Ávísun á risagjaldþrot ef lán fæst ekki frá IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Semsagt; byggja upp nýtt hagkerfi sem hefur hófsemi, sjálfbærni og samhjálp að leiðarljósi. Þetta er skynsamlegasta og raunhæfasta lausn sem ég hef ennþá heyrt.

Ég legg til að húsfreyjur af þessu tagi taki við stólum forsætis-, fjármála- og viðskiptaráðherra.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 16:47

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Þakka fyrir Eva, þó húsfreyja hafi hér lent í slæmri tölvutengingu og lent inni á bloggi systur sinnar.  Kannski maður lendi inni í ríkisstjórn næst.

  Systir, ég er búin að endurrita bloggið á "réttan" stað, en þú ræður hvort þú strokar þetta út eða heldur inni.

Sigríður Sigurðardóttir, 16.11.2008 kl. 21:19

3 Smámynd: Árný Sigurðardóttir

bloggaðu eins og þú vilt.......hvenar sem er....hvar sem er...uss engin má vita...

Árný Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband