Það ringdi,það var hundleiðinlegt veður hífandi rok,og það kom haglél.
stuðningsmenn selfoss liðsins sungu..selfoss ég elska þig ú ú ú
þeir voru mjög skemmtilegir ,litla liðið mitt starði á þessa hressu drengi...feas feas...góluð stuðningsmennirnir..og það er bara eitt lið á vellinum....líka...heyrðist ..hvar er stemmingin..hvar er stemmingin....selfoss var yfir í hálfleik 2-0.
stuðningsmenn eyjaliðsins voru rólegir..ekki endilegir komnir til að horfa á fótbolta...heldur til að sjá eyjamenn taka við bikarnum...
3-0 vá boltinn fauk hreynlega upp í vindinn..ekki fallegur fótbolti..en svo kom mark hjá eyjamönnum...þá varð allt vitlaust....það eyjamenn sungu....stuðningsmenn selfoss fóru úr á ofan en þeir vissu að stjarnan var að jarða hauka svo þeir urðu væmnir og vældu..selfoss ég elska þig....litla liðinu þótti skrítið að liðið sem tapaði fékk bikar ..var heillengi að skíra þetta út fyrir þeim....svo núna er bikarinn á leið til eyja með herjólfi í brjáluðu brælu....vonandi notar enginn hann fyrir ælu dall
til hamingju aftur eyjamenn..BIKARINN TIL EYJA....bless Árný íbvari
Bloggar | 20.9.2008 | 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
rok og rigning
nú er ísland kalt og kalið
er þetta landið sem þú kaust.
því var svona illa valið
það er rétt að koma haust.
Við hefðum aldrei átt að byrja að mála húsið.allt okkur að kenna ,búið að vera rigning alveg frá því að pennslinum var dýft í málingar fötuna.
En svo er ég svo næs,vinnufélagi minn,eldri kona er farin að plana að koma sér á elliheimili,vill láta stjana í kringum sig og ég setti upp,ég er svo næs svipinn og sagðist myndi lána henni kuðungasafnið mitt.
Hun svaraði að hún vildi ekki taka nein hjálpar tæki með sér.
Ég fékk hana nú samt til að hugsa málið betur.þær eru alveg bit á mér að vera að safna þessu og spyrja mig á hverjum degi hvað ég ætli að gera við þessa kuðunga.ég veit það ekki sjálf.en það kemur í ljós.möguleikarnir eru óteljandi,held ég.
En núna er ég bara með hugan við fótboltaleikinn á laugardaginn.er búin að panta húfur á litla liðið.
yfir og út.bless Árný
Bloggar | 16.9.2008 | 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég fer ekki í djúpu lofa.þetta sagði sá litli og var svo rokinn út með heimari í sund.
Auðvita fór hann eins langt og hann þorði,kannski ekki alla leið en fyrir lítinn peyja var þetta svaka djúft.
skrítið hvað allir karlmenn þurfa alltaf að sanna sig fyrir mér.vitið þið ekki að ég elska ykkur samt.ó ég gleymdi dúskurinn hann hefur aldrei þurft að sanna neitt fyrir mér ,hann er og verður vandamál af minni hálfu.
Svo eru það eyja menn sem sönnuðu það að þeir eru bestir.TIL HAMINGJU .....þið eru á leiðinni upp.Heimir frændi stóð sig vel og á laugardaginn fer ég á selfossvöll og samgleðst með ÍBV.en greyin í selfoslsiðinu verða að bíða og sjá til hvað stjarnan gerir.mér er nokk sama hver fer upp með eyja mönnum.
koma svo ,áfram ÍBV.....skrítið að hafa búið hérna í yfir 35 ár og vera samt svona mikil eyjamaður samt.en ég er fædd í eyjum og verð alltaf vestmanneyjingur.bless í bili Árný
Bloggar | 15.9.2008 | 20:12 (breytt kl. 20:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég hef heyrt að erfiðustu sjúklingarnir séu læknarnir sjálfir og fólk í heilbrigðis geiranum.
En núna er systir mín lent inni á sjúkrahúsi,henni á eftir að batna tekur smá tíma ,hún getur kinnt sér ástandið í heilbrigðismálum á meðan hún dokar þarna við.
við treystum því að hún sjá skoplegu hliðarnar á þessu veseni sínu,eins og alltaf , bestu bata kveðjur elsku systir bless Árný.
Bloggar | 14.9.2008 | 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég minnist þín.
þú varst sá lang besti.
þú varst eins og ég vildi hafa þig.
einstakur,sérstakur,skemmtilegur,frábær.
vinur.
þú varst faðir minn.
Í dag eru sex ár síðan hann pabbi dó.
heil sex ár.
Ég hefði viljað að hann hefði fengið að sjá vigran og öll hin sem komu á eftir honum.
Hann hefði orðið svo montinn af litla liðinu.
Ég veit að hann fylgist með okkur.
bless Árný
Bloggar | 12.9.2008 | 17:08 (breytt 13.9.2008 kl. 15:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
gott hjá þér Hennsla að klukka mig,mér leiddist...eða þannig.svo núna kemur þetta.verður bara gaman.
1.fjórir staðir sem ég hef búið á.
bíddu á þetta að vera findið.ég hef aldrei flutt að heima.
vestmannaeyjum hjá mömmu
reykjavík hjá ömmu hemmu.og mömmu.
hérna heima hjá mömmu.
?
2.fjórar bíó myndir sem ég held upp á.
fool play.
stella í orlofi
greas(grís)
stuttur frakki.
3.fjórir staðir sem ég hef unnið á.
meitillinn
portland.
árnes
ramminn
4.fjórir staðir sem ég hef heimsókt í fríum.
lögreglustöðin í eyjum.
new york
vaxmyndar safnið í london.
ölfusborgir.
5.fjórir sjónvarps þættir sem mér líkar.
spaugstofan
stundin okkar því þá fæ ég pásu á meðan.
tvídrangar þegar þeir voru sýndir
konan sem eldar matinn.engin guðfinnu steik þar.
6.fjórar síður sem ég skoða daglega.
mín
þín
siggu
mömmu
7.fernt matarkyns sem ég held upp á.
kjúlli
hænsni
kjúklingur
pútur
8.fjórar bækur/blöð sem ég les oft.
beverly 1.2.3.4. ef ég myndi finna þær.
moggann
yfirlitið frá bankanum.
andrés önd.í tætlur.
9.fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna.
upp á fjalli í tjaldi,helst í roki og rigningu.
uppi í rúmi sofandi.
spáni í sólbaði.
uppi á þaki að mála.
10.fjórir bloggarar sem ég vil klukka.
bíð með að klukka ,því ég þekki voða fá bloggara.er það ekki bara skrítið fólk sem bloggar.
bless árný
Bloggar | 9.9.2008 | 19:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fór seint að sofa,vakti eftir stínunni hún fór á skrall með eldriborgurum.
Síminn byrjaði svo að hringja....fyrst um hálf tvö...dúllu dúskur mættur...ég var orðinn laus við þessar hringingar, var farinn að halda að dúskurinn væri búinn að gleyma okkur eða vonaði þaðhann sagði ekki neitt ég held að hann vilji bara heyra mína fallegu rödd.ég hætti að svara og sofnaði
vaknaði svo við símhringingu og þar sem ég nota síman fyrir vekjaraklukku hélt ég að nú væri tími til að skreppa í vinnuna...leit á klukkuna hún var hálf...flott ,fór á fætur...gerði nokkrar teygju æfingar...borðaði góðan morgun mat(heitt og dýfukex)kvaddi heimilismeðliminna með kossi,þá sem voru vakandi ,hundurinn og kanínan.ýtti bílnum út botnlangann til að vekja ekki nágranana og blússaði í vinnuna....þar var allt slökkt...ég leit á klukkuna hún var 4.40.síminn hringdi..ég þakkaði dúskinum fyrir að koma mér í vinnu svona snemma hann hló ho ho ho ég pirruð .heim.sofnaði .mætti út tauguð þreytt í vinnuna kl.5.50...og þar sem ég læt engan eiga neitt inni hjá mér hringdi ég í dúskinn og lét hringja vel og lengi.....skræk kvennmanns rödd svaraði ...frú Dúa mætt.....skell .því ég vildi jú ekkert við frúnna tala....hún var ekki á sama máli...hringdi stanslaust og sendi sms....hringdi heim vakti stínuna..sagði að það væri ókurteisi að vekja fólk um há nótt......alveg sammála frú dúa....plís láttu dúlladúsk fá leikfanga síma næst þegar hann blottnar því takka óðari mann er ekki hægt að finna...svo mín syfjuð og þreytt í dag og vildi bara óska þess að dúlli hefði leift mér að lúlla.
Bloggar | 6.9.2008 | 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Það er erfitt að vera mamman í leiknum og þurfa að redda öllu,strákarnir mínir eru mjög ólíkir..annar rólegur og þinn göslari,meiri strákur í sér.....annar verður prófisor en hinn bílakall......ég veit yfirleitt ekki af þeim stærri en sá minni er litli skugginn minn.þess vegna sendi ég þá oft út saman að leika sér.....sá stærri passar upp á litla.en sá stærri á marga vini sem vilja svo sem alveg hafa þann litla með en svo er það einn vinurinn sem kemur og spyr eftir þeim stóra ,en vill ekki hafa þann litla með og þá verður sá litli reiður,og yfir leitt endar þetta með gráti hjá báðum og hvað gerir mamman þá ..jú reini að redda þessu..hvernig jú sendi piltinn heim og þann litla inn í smá stund...en svo er farið að kvarta..minn maður kallaður slagsmála hundur...lemju púki...og ekki hlustað á mín rök....sem eru sá litli má alveg vera með.Það er erfitt núna að vera reddari en hvernig verður þetta eftir nokkur ár'?unglingar árin ó þá verður sko fjör....vona samt að nágranarnir verði jafn þolinmóðir og núnabestu reddara kveðjur árný
Bloggar | 5.9.2008 | 17:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | 3.9.2008 | 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar